Posted at 04:49 pm by Trausti
Permalink
Posted at 08:56 pm by Trausti
Permalink
Hahhahhahahhah ég hef alltaf vitað þetta
Posted at 08:51 pm by Trausti
Permalink
Posted at 05:20 pm by Trausti
Permalink
Ok ég er búinn að halda aftur af mér núna í 3 daga að skrifa um þessa þrautargöngu mína sem er í boði Office one..
Byrjaði þannig að fyrir ca mánuði síðan bilaði tölvan mín og ég pakkaði henni samviskulega inn og sendi hana í viðgerð í gegnum útibú Office one á egs..
Vika eitt : Slefandi veslunarstjórinn hringir og segir að þeir finni ekkert að tölvunni..
Ég rek það ofan í hann og segi honum að láta skoða tölvuna betur..
Vika tvö : Aaaaaaaa hleðslutækið er ónýtt.. Kemur í næstu viku.
Vika þrjú: Aaaaaaaa hleðslutækið er ónýtt.. Kemur í næstu viku. hahahahahaha
Vika fjögur: Hleðslutækið er komið en það þarf að stetja inn stýrikerfið upp (þurrka allt út úr tölvunni ALLT) Ok Ég segi alltí læ ef þeir flytja öll gögnin mín ljósmyndir,tónlist,bíómyndir og önnur gögn yfir í aðra tölvu til þess að þetta glatist ekki þegar hún er sett upp á ný....
Þegar ég fæ tölvuna afhenta er hún ekki í kassanum,það vantar snúruna úr straumbreytinum . alla diskana með stýrikerfunum sem ég sendi með oooooooooooooog það er búið að þurrka út alla tónlistina og allar myndirnar sem ég var búinn að að sanka að mér ...
Ég var aðeins minna en ánægður með þessa þjónustu eins og gefur að' skilja of hef heitið því að kaupa ekki fleiri tölvur hjá þessu kompanýi .... og að reyna ekki að senda tölvuna mína í viðgerð aftur..
Posted at 08:29 pm by Trausti
Permalink
Já já þessi færsla er fyrir þig Íris ; )...
Föstudagur.....
Jæja en..Átti frábæra helgi sem byrjaði á grillveislu og bjór hjá mínum kæra nágranna honum Fannari sem bauð líka Bjössa og Herði ( sem var með endalausan kjaft við húsráðanda ) .. Matnum var skolað með bjór og meiri bjór og enn meiri bjór ..Mjööög gott..
Fanni græjaði einhverjar smápíkur til að rúnta með okkur og við skelltum okkur svo á Svarthvítu Hetjuna sem var frekar dauf enda flúðum við yfir á Cafe Crap Man ekki alveg hvernig en Takk þú sem skutlaðir okkur..
Man ekki alveg hverjir voru þar en það var gaman og nokkuð fjölmennt.. Allavega nógu margir til að það væri hægt að slást svolítið.. Höski SKAMM...
Næsa minning er að það er kallað í mig er ég geng upp tröppurnar frá cafe crap " Trausti komdu að Veiða " það var Skúli Magg..og með honum, Haffa Snjólf , Ásgeiri (Á nýja Benzanum) og kærastanum hennar Elsu Arneyjar Brunuðum við inn í fljótsdal (Bessastaðaá) þar sem drukkinn var meiri bjór.. Fékk égt titilinn lélegasti veiðimaðurinn þar sem ég kastaði veiðarfærunum alltaf í tærnar á mér eða manninum sem stóð mér næst.. En mér til varnar reyndi ég þó ekki að egna með neinu öðru en önglinum.. Hummm
Einnig fékk ég á mig nokkrar háðsglósur fyrir að ná að "sofna" á árbakkanum í sömu stellingum og hafmeyjan Danska.. Ekki Sáttur við það..
Laugardagur..
Var frekar erfiður .. var frekar slappur en það lagaðist uppúr kvöldmat þegar byrjað var á bjórnum og sett í gír á Reyðarfjörð.. Nánar tiltekið á ball með Skítamóral ..
Heldur var nú dauf stemming þar en skást á kósý.. Sjálfsagt einir tuttugu manns þar ..
Eftir smá þref sóttum við Sæþór bleyjubruna á Eskifjörð og skrunuðum svo á Ball í héraði.. Miklu betra það og var þar alveg ótrúleg stemming þrátt fyrir að ég hafi verið með elstu mönnum á svæðinu :( .. Eftir Ball var drifið sig í Stekkjartröðina og skellt upp teiti með skemmtiatriðum (Hallveig á nærunum ) og svo var ég víst með einhver skemmtiatriði en þau verða ekki rædd hér ...
Sunnudagur..
Var ræstur um þrjúleitið af Fasnnari til að skutla Sæþóri heim á Norfjörð og þar sem hann er nú svo mikill höfðingi þá bauð hann okkur á kajak.. Fórum og busluðum aðeins en ég blotnaði ekki
Helvíti gott.. Mæli með því að fólk prófi þetta . Þetta er mjög gaman..
Restin af deginum fór í Sleeeeef uppí sófa og reyndar Mánudagurinn líka (eftir vinnu) og var vinnudagurinn sá einn sá lengsti og erfiðasti í langan tíma.
Jæja bara svona að nefna það sem er á döfinni .. Þessi helgi er það Cafe Crap á Laugardaginn, Næsta Franskir Dagar á fáskrúðsfirði og svo verslunarmannahelgin sem að gæti jafnvel verið að ef ég sleppi af mér beyslinu að það yrði Ólafsvaka Jeeeeeeeiiiiiiiii
Hvað ætlið þið að gert ?????????
Skrifa eitthvað eftir helgi og set jafnvel inn myndir úr veiðiferðinni ef ég næ þeim úr símanum .. Seinna
Posted at 07:26 pm by Trausti
Permalink
Ég get aftur sagt frá því ógrátandi að ég sé Maclaren maður eftir góða keppni í dag og sigur Kimi Raikkonen.. Það gladdi mig samt meira að báðir Renault bílarnir skyldu detta út.. Það er að verða keppni úr þessu og mig hlakkar mikið til næstu keppni..
Fór á snilldar skrall í gær með Fanna og Bróa.. Við drifum okkur á Cafe KHB þar sem var þokkaæegur stemmari en stuðið var á Hetjunni þar sem rokkað var fram eftir nóttu, eða þangað til að mér var skilað heim..
Minna varð úr vinnudeginum en til stóð við litla ánægju verkstjórans....
Jæja ætla að heiðra áramótaheitið og fara út að hlaupa.. ekki seinna vænna , kominn 12 Júní
Posted at 11:55 am by Trausti
Permalink
Sit einn heima með Green day í blásandi botni, skít sama hvort nágrannarnir "fíla" tónlistarsmekk minn eða ekki... Þeir kvörtuðu a.m.k ekki kl eitt í nótt þegar ég blasstaði Dyers Eve með Metallica
svo að þeir eru ekki líklegir til að kvarta..
Svona tiltölulega nýbúinn að vinna og er vænst í vinnu á morgun Sunnudag .. veit ekki alveg hvort það verður samt .. Vonandi veld ég Valla ekki miklum vonbrigðum ef ég skyldi "óvart" vera þunnur.
Það er nefnilega þrítugsafmæli ó kvöld og er afmælisbarnið enginn annar en Sigurður Arnfinnson ..
Orðinn 30 ára hvorki meira né minna . Til hamingju Siggi .
Í þessum töluðu rúntar sami Terranóinn í fimmta skipti með foreldrum og fellihýsi framhjá glugganum og góna á sleðann minn.. Ef þau koma einu sinni enn stekk ég út og sel þeim sleðann á persónutöfrunum einum saman... ; ) Lítið mál það..
Veit ekki alveg en að spá í að skjótast í "borg óttans" á sautjándanum.. helgin býður upp á gott djamm og kannski bílakaup .. Ekki vanþörf á því .. Djamminu þar að segja.
Er annars ekki búinn að gera neitt merkilegt undanfarið nema að fara á sjómannadagsball á Eskifjörð
og hitta gamlar honeyz ;) og væntanlegar .. Hvað annað .. Ekkert um þetta að segja nema að ballið var snilld og ég fór allt of snemma heim...
Lappinn minn er í viðgerð sem er nú svo sem ekkert merkilegt nema vegna þess að fyrsta kvöldið án hennar var frekar erfitt að láta sér ekki leiðast og bara að fara að sofa yfir höfuð.. Sorglegt.
Posted at 01:44 pm by Trausti
Permalink
Jæja vikan er búin að vera ágæt ,búinn að vera úti í sólinni og snjókomuni í leikskólanum...
Er búinn að vera þess mikla heiðurs aðnjótandi að vinna náið með Skúla Magg , sem er búið að vera frekar gaman ... t.d sagði hann mér að ég fengi 1000 rokkstig ef ég myndi ná að draga einhverja kvensu inn í kartöflugeymsluna sem er rétt hjá gömlu hettunni ...
Það var sól og frekar heitt á dag (a.m.k. fór ég úr kuldagallanum í fyrsta sinn í þessari viku).
Það eina sem skemmir reglulega fyrir mér vikuna er óverðskuldaður sigur Drullupolls í meistaradeildinni á AC Milan.. Var frekar óhress á miðvikudaginn í kringum sigri hrósandi poolara.
Og svo kvíði minn að hitta hann , ja höfum hann ónefndan frænda minn sem er einmitt poolari sem á eftir að tala um þetta þar til að hann fer í gröfina... Ég hef ætlað mér að reyna að forðast hann þangað til...
Vorum aðeins léttir á því í gær og pöntuðum okkur Dominos með flugi til Egilss og greiddum litlar 15.000 kr fyrir 12 stórar+2 faxakassa af bjór+kók og úr þessu farð þessi líka fíni stemmari..
Hætti "snemma" að vinna í kvöld eða um níuleitið og skellti mér á sleðann í kvöldsólinni..
nema hvað að það var að sjálfsögðu svo gaman að ég gleymdi mér alveg gjörsamlega og var rétt búinn að verða bensínlaus upp á miðri heiði.. en komst niður að bíl eða þannig, þurfti að ýta tækinu síðustu 100 metrana.. það var agalega erfitt, en það hafðist..
Það er vinna alla helgina hjá mér og er ég að fara að girða í kring um leikskólann til að halda þessum blessuðu börnum sem þetta graða fólk á Egilsstöðum er búið að framleiða..Og ekki nóg með það heldur heyrist mér að það eigi að fara byggja við hann strax vegna þess að hann er nú þegar of lítill...
Jæja heils... Og skrifið í gestabókina
Posted at 05:08 pm by Trausti
Permalink
Jæja þá er það byrjað.. og ekki aftur snúið.. Ég vil biðja Svavar Örn um að sleppa öllum athugasemdum hér því að þær verða þurrkaðar út...
Posted at 05:50 pm by Trausti
Permalink